mánudagur, maí 15, 2006

Brottför á morgun (7-9-13)

JÆJA...

Nú erum við að verða eins klárir til að fara og hægt er. Búið er að kaupa forláta þrýstipott, pönnu og ketil ásamt helling af mat sem hentar til svona ferðalaga, s.s. dósamat, beikonkurl, pasta, brauð sem geimist vel, súkkulaði og margt, margt fleira.

Búið er að reynslusigla bátnum um 50 sjómílur, leggjast við akkeri, setja upp belg og yfir höfuð prófa allt sem hægt er að prófa í þeim vindi sem hér hefur verið. Smá hnökrar hafa komið upp en ekkert stórvægilegt sem gæti seinkað enn fyrir okkur.

Belgurinn verðskuldar nokkur orð. Hann er þannig útbúinn að utan um hann er sokkur sem dreginn er upp til að opna belginn og niður til að loka honum. Skemmst er frá því að segja að þegar við vorum búnir að átta okkur á spottunum sem fylgja þessu systemi reyndist ekki meira mál að setja upp og fella belginn en að renna buxnaklauf upp og niður! Algjör snilld!!!

Í fyrramálið verður sprayhoodið sett upp og skipt um þetta gallaða sjálfsstýringarmótorhænsn, en til viðbótar þurfum við að fá hjá þeim eina fastblökk, sem reyndist ekki sem skildi (snýr öfugt). Síðan verður fyllt endanlega á olíutankana og lagt af stað strax og sjávarhæð leyfir.

Eins og fram hefur komið þá er meiningin að taka stefnuna beint til Írlands. Þar vitum við af islendingum á bát sem er einnig á leið til Íslands . Sá bátur er þessa stundina í Dublin að því að við vitum best og er að fikra sig milli hafna, norður eftir austurströnd Írlands. Meiningin er að hafa samband við hann á morgun og sjá hvernig honum hefur gengið (auðvitað erum við að hugsa um að reyna að ná honum eða vera á undan honum heim :-)

Myndir

baturinn ad innan




Myndn er tekin vid Ile de Aix. Tharna hentum vid ut akkeri og fengum okkur ad eta


Loggin synir 0.76 sjom. hrada en tharna lagum vid vid akkeri. Thetta er s.s. straumurinn

5 Comments:

At 7:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sælir sægarpar!

Gott mál að þetta er að hafast! Bara vonandi að það gangi eftir með mótordæmið á morgun svo þið getið loks lagt af stað!!!
Gaman að sjá myndir með blogginu. Þessi síða er núna ein af þessum síðum á mínum rúnt um netið og það er ansi oft á dag!
kv. Ásthildur

 
At 8:41 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sæll Haraldur (og hinir líka - sem ég þekki þó ekki).
Báturinn er flottur! Skilaðu hamingjuóskum til eigandans. Ég verð að fá að vita meira um hlutverk þessa belgs við tækifæri.
Frábært að allt hefur smollið saman og þið að leggja af stað yfir Atlantsála. Ætla að fylgjast með.
Bið að heilsa til fallega Írlands og góða ferð.
Bestu kveðjur
Þóra

 
At 12:22 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ.
Góða ferð yfir hafið - ég tek undir að La Rochelle er falleg borg, eyddi einu sumri þarna á síðustu öld! Hafði sérstakt dálæti á Il de Rée :)
Góða ferð
Gurra

 
At 3:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æðislegt!
Það er greinilega sól þarna. Munið sólaráburðinn.
;-)

 
At 4:30 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Arnar kaupa sólarvörn

góða ferð
Navision gaurarnir í Skýrr

 

Skrifa ummæli

<< Home